
Um stafræn réttindi
Við notkun þessa tækis skal hlíta öllum lögum og virða
staðbundnar venjur, einkalíf og lögmæt réttindi annarra,
þ.m.t. höfundarrétt. Varnir vegna höfundarréttar geta
hindrað afritun, breytingu eða flutning mynda, tónlistar og
annars efnis.
Eigendur efnis kunna að nota mismunandi gerðir stafrænnar
réttindatækni (DRM) til að vernda hugverkarétt sinn, þ.m.t.
höfundarrétt. Þetta tæki notar mismunandi gerðir
stafrænnar tækni til að opna stafrænt varið efni. Í þessu tæki
er hægt að opna efni sem er varið með WMDRM 10, OMA DRM
1.0, OMA DRM 1.0 forward lock, og OMA DRM 2.0. Ef tiltekinn
stafrænn hugbúnaður nær ekki að verja efni geta
efniseigendur beðið um að hæfni slíks hugbúnaðar til að
opna nýtt efni sem er varið með stafrænni réttindatækni sé
afturkölluð. Með afturköllun er einnig hægt að hindra
endurnýjun á þannig vernduðu efni sem þegar er í tækinu.
Afturköllun slíks hugbúnaðar hefur ekki áhrif á notkun efnis
sem er varið með öðrum gerðum stafrænna réttinda eða
notkun efnis sem ekki er varið með stafrænum réttindum.
Efni sem er varið með stafrænum réttindum (DRM) fylgir leyfi
sem tilgreinir hvernig hægt er að nota efnið.
Ekki er víst að aðrar flutningsaðferðir flytji leyfin sem þarf að
endurstilla með OMA DRM-vörðu efni, til þess að hægt sé að
nota það eftir að minni tækisins hefur verið forsniðið. Einnig
gæti þurft að endurstilla leyfið ef skrár í tækinu skemmast.
Ef tækið inniheldur WMDRM-varið efni glatast það efni ásamt
leyfi þess ef minni tækisins er forsniðið. Einnig gæti leyfið og
efnið glatast ef skrár í tækinu skemmast. Glatist leyfið eða
efnið getur það takmarkað möguleikann á að nota efnið
aftur. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.
Sum leyfi kunna að vera tengd tilteknu SIM-korti og aðeins er
hægt að fá aðgang að varða efninu ef SIM-kortið er í tækinu.
Vöru- og öryggisupplýsingar 33
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.