Nokia C3 00 - Endurvinnsla

background image

Endurvinnsla

Að loknum endingartíma tækisins má

endurnýta allan efnivið tækisins sem efni

og orku. Til að tryggja að rétt sé staðið að

losun og endurvinnslu tekur Nokia, ásamt

samstarfsaðilum sínum, þátt í áætlun sem

nefnist We:recycle.Til að fá upplýsingar

um endurvinnslu á gömlum Nokia-vörum

og hvar finna má losunarstaði skal fara á

www.nokia.com/werecycle, eða ef

farsími er notaður, nokia.mobi/

werecycle, eða hringja í þjónustuver

Nokia.
Endurvinna skal pakkningar og

notandahandbækur á næstu

endurvinnslustöð.

Merkið sem sýnir yfirstrikaða ruslafötu og

er á vörunni, rafhlöðunni, bæklingnum

eða umbúðunum táknar að fara verður

með allan rafbúnað og rafeindabúnað,

rafhlöður og rafgeyma á sérstaka staði til

förgunar að líftíma vörunnar liðnum. Þessi

krafa á við innan Evrópusambandsins.

Hendið þessum vörum ekki með

heimilisúrgangi. Nánari upplýsingar um

umhverfiseiginleika tækisins eru á

www.nokia.com/ecodeclaration.