
Innsláttur texta á takkaborði
Tækið er með takkaborð í fullri stærð.
Innsláttartungumál valið
Veldu
Valkostir
>
Tungumál texta
og
tungumálið sem nota skal. Til að skipta
um innsláttartungumál er einnig hægt að
ýta á virknitakkann og síðan ctrl-takkann.
Skipt milli tölustafa og bókstafa
Ýttu endurtekið á virknitakkann þar til
táknið fyrir tilteknu innsláttaraðferðina
birtist.
Tölustafastillingu læst
Ýttu tvisvar á virknitakkann.
Tölustafastilling tekin úr lás
Ýttu á virknitakkann.
Skipt milli stafagerða
Ýttu á skiptitakkann.
Tölustafir eða bókstafir efst í hægra
horni takka slegnir inn
Haltu viðkomandi takka inni.
Staf eytt
Veldu
Hreinsa
. Einnig er hægt að nota
bakktakkann.
Sértákn sett inn
Ýttu á tákntakkann og veldu tiltekna
táknið. Ýttu aftur á tákntakkann til að sjá
fleiri tákn.
Ný lína slegin inn
Ýttu á enter-takkann.
Bil slegið inn
Ýttu á biltakkann.
Texti afritaður eða klipptur
Haltu skiptitakkanum inni og flettu til að
auðkenna orðið, setninguna eða línuna
sem á að afrita eða klippa. Haltu ctrl-
takkanum inni og ýttu síðan á C (afrita)
eða X (klippa).
Texti límdur
Farðu að tiltekna staðnum, haltu ctrl-
takkanum inni og ýttu síðan á V.