
SIM-korti og rafhlöðu komið fyrir
Örugg fjarlæging. Alltaf skal slökkva á
tækinu og aftengja hleðslutækið áður en
rafhlaðan er fjarlægð.
Mikilvægt: Ekki skal nota mini-UICC
SIM-kort, einnig þekkt sem micro-SIM-
kort, micro-SIM-kort með millistykki eða
SIM-kort með mini-UICC straumloka (sjá
mynd) í þessu tæki. Micro SIM-kort er
minna en venjulegt SIM-kort. Þetta tæki
styður ekki notkun micro SIM-korta og ef
ósamhæf SIM-kort eru notuð getur það
valdið skemmdum á minniskortinu eða
tækinu sjálfu og gögn sem geymd eru á
kortinu geta skemmst.
SIM-kortið og innihald þess getur hæglega
orðið fyrir skemmdum ef það er rispað eða
beygt svo fara skal varlega þegar það er
meðhöndlað, sett inn og tekið út.
1 Ýttu á sleppitakka bakhliðarinnar og
fjarlægðu bakhliðina (1, 2). Fjarlægðu
rafhlöðuna (3).
2 Gættu þess að snertiflötur SIM-
kortsins snúi niður og komdu SIM-
kortinu fyrir í SIM-kortahöldunni (4, 5,
6).
3 Rafhlaðan er sett í tækið og
bakhliðinni komið fyrir (7, 8, 9).
Tækið tekið í notkun
7
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.