
microSD-korti komið fyrir
Aðeins skal nota samhæft microSD-kort
sem Nokia samþykkir til notkunar með
þessu tæki. Nokia styðst við viðurkennda
staðla fyrir minniskort. Þó getur verið að
sum kort sé ekki hægt að nota að fullu
með þessu tæki. Ósamhæf kort geta
skaðað kortið og tækið og skemmt gögn
sem vistuð eru á kortinu.
Síminn styður microSD-kort sem eru allt
að 8 GB að stærð.
Samhæft minniskort fylgir kannski með
tækinu og kann að vera á sínum stað. Ef
ekki skaltu gera eftirfarandi:
1 Opnaðu minniskortsraufina.
2 Settu kortið í raufina þannig að
snertiflötur þess snúi upp og ýttu á
það þar til það smellur á sinn stað.
3 Lokaðu minniskortsraufinni.