
Lykilorð
Öryggiskóðinn hindrar að tækið sé notað
í leyfisleysi. Hægt er að búa til og breyta
kóðanum og láta tækið biðja um hann.
Haltu kóðanum leyndum og á öruggum
stað fjarri tækinu. Ef þú gleymir kóðanum
og tækið er læst þarftu að leita til
þjónustuaðila. Þú getur þurft að greiða
viðbótargjald og persónulegum gögnum í
tækinu kann að verða eytt. Nánari
upplýsingar færðu hjá Nokia Care
þjónustuaðila eða söluaðilanum.
PIN-númerið, sem fylgir SIM-kortinu, ver
kortið fyrir óleyfilegri notkun. PIN2-
númerið, sem fylgir sumum SIM-kortum,
er nauðsynlegt til að komast í tiltekna
þjónustu. Ef þú slærð inn rangt PIN- eða
PIN2-númer þrisvar sinnum í röð þarftu að
slá inn PUK- eða PUK2-númerið. Ef þau
fylgja ekki SIM-kortinu skaltu hafa
samband við þjónustuveituna.
PIN-númer öryggiseiningar er
nauðsynlegt til að fá aðgang að
upplýsingum í öryggiseiningunni. PIN-
númer undirskriftar kann að vera
nauðsynlegt til að nota stafrænu
undirskriftina. Slá þarf inn lykilorð
útilokunar þegar útilokunarþjónustan er
notuð.
Hægt er að velja hvernig tækið notar
aðgangsnúmer og öryggisstillingar í
Valmynd
>
Stillingar
>
Öryggi
.