
Hleðsla rafhlöðunnar
Rafhlaðan kemur hlaðin að hluta til frá
framleiðanda. Ef tækið sýnir að rafhlaðan
sé að tæmast skaltu gera eftirfarandi:
1 Tengdu hleðslutækið við innstungu.
2 Tengdu hleðslutækið við tækið.
3 Þegar tækið sýnir að rafhlaðan sé
fullhlaðin skaltu taka hleðslutækið úr
sambandi við tækið og síðan úr
innstungunni.
Ekki þarf að hlaða rafhlöðuna í tiltekinn
tíma og hægt er að nota tækið á meðan
það er í hleðslu. Ef rafhlaðan er alveg tóm
geta liðið nokkrar mínútur þar til
hleðsluvísirinn birtist á skjánum eða þar
til hægt er að hringja.