Nokia C3 00 - Þráðlaus Bluetooth-tækni

background image

Þráðlaus Bluetooth-tækni

Með þráðlausri Bluetooth-tækni er hægt

að tengja tækið, með útvarpsbylgjum, við

samhæft Bluetooth-tæki eða aukabúnað

sem er í innan við 10 metra fjarlægð (32

fet).
Veldu

Valmynd

>

Stillingar

>

Tengingar

>

Bluetooth

.

Uppsetning Bluetooth-tengingar

1 Veldu

Nafn símans míns

og sláðu inn

nafnið á tækinu.

2 Veldu

Bluetooth

>

Kveikja

. sýnir

að Bluetooth-tengingin er virk.

3 Til að tengja tækið við aukabúnað

fyrir hljóð skaltu velja

Tengja

hljóðaukab.

og tækið sem að þú vilt

tengjast.

4 Til að para tækið við eitthvert

Bluetooth-tæki á svæðinu skaltu velja

Pöruð tæki

>

Nýtt tæki

.

Veldu tækið og svo

Bæta við

.

Sláðu inn lykilorð (allt að 16 stafir) í

tækið til að heimila tengingu við

annað Bluetooth-tæki.

Hafir þú áhyggjur af öryggi skaltu rjúfa

Bluetooth-tenginguna eða breyta

stillingunni

Sýnileiki símans

í

Falinn

.

Samþykktu aðeins Bluetooth beiðnir frá

þeim sem þú treystir.
Tölva tengd við internetið

Hægt er að nota Bluetooth-tækni til að

tengja tölvuna við internetið án þess að

nota PC Suite hugbúnaðinn. Tækið verður

að geta tengst internetinu (sérþjónusta)

og tölvan verður að styðja Bluetooth-

tækni. Eftir tengingu við aðgangsstað

tækisins, og pörun við tölvuna, opnar

tækið sjálfkrafa pakkagagnatengingu við

internetið.

Þetta tæki er samhæft við Bluetooth

Specification 2.1 + EDR sem styður

eftirfarandi snið: generic access, hands-

free, headset, object push, file transfer,

dial-up networking, serial port, SIM access

og generic object exchange. Til að tryggja

samvirkni milli annarra tækja sem styðja

Bluetooth-tækni skal nota aukabúnað

sem eru viðurkenndir af Nokia fyrir þessa

tegund. Leita skal upplýsinga hjá

framleiðendum annarra tækja um

samhæfi þeirra við þetta tæki.
Þau forrit sem notast við Bluetooth ganga

á rafhlöðu símans og draga úr endingu

hennar.

Stillingar 27

© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.