
Vernda skal tækið gegn skaðlegu efni
Vírusar og annað skaðlegt efni hafa áhrif
á tækið. Gera skal eftirfarandi
varúðarráðstafanir:
•
Fara skal með gát þegar skilaboð eru
opnuð. Þau geta innihaldið skaðlegan
hugbúnað eða skaðað tækið eða
tölvuna á einhvern annan hátt.
•
Fara skal með gát þegar tengibeiðnir
eru samþykktar, vafrað er á netinu
eða efni er hlaðið niður. Ekki skal
samþykkja Bluetooth-tengingar frá
aðilum sem ekki er treyst.
•
Aðeins skal setja upp og nota
þjónustu og hugbúnað frá aðilum sem
er treyst og sem veita nægilegt öryggi
og vörn.
•
Setja skal upp vírusvarnarhugbúnað
og annan öryggishugbúnað í tækinu
16 Skilaboð
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.

og tölvum sem tengjast við það.
Aðeins skal nota eitt vírusvarnarforrit
í einu. Ef fleiri eru notuð getur það
haft áhrif á afkastagetu og virkni
tækisins og/eða tölvunnar.
•
Ef opnuð eru foruppsett bókamerki
eða tenglar að netsíðum þriðju aðila
skal gera viðeigandi
varúðarráðstafanir. Nokia leggur
hvorki stuðning sinn við né tekur
ábyrgð á slíkum síðum.