
Textaskilaboð
Tækið styður textaskilaboð sem fara yfir
takmörkin fyrir ein skilaboð. Lengri
skilaboð eru send sem tvö eða fleiri
skilaboð. Þjónustuveitan tekur
hugsanlega gjald í samræmi við það.
Stafir sem nota kommur, önnur tákn eða
valkosti sumra tungumála taka meira
pláss og takmarka þann stafafjölda sem
hægt er að senda í einum skilaboðum.
Stafafjöldi sem eftir er og fjöldi skilaboða
sem þarf til sendingar birtist.
Til að hægt sé að senda skilaboð þarf rétta
skilaboðamiðstöðvarnúmerið að vera
vistað í tækinu. Venjulega er þetta númer
sett sjálfkrafa inn með SIM-kortinu.
Til að setja númerið inn handvirkt þarftu
að gera eftirfarandi:
1 Veldu
Valmynd
>
Skilaboð
>
Fleira
>
Skilaboðastillingar
>
Textaboð
>
Skilaboðamiðstöð
.
2 Sláðu inn nafnið og númerið sem
þjónustuveitan gaf upp.